Legal notice
Almennt:
Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála vandlega áður en þeir versla í vefverslun Emma Body Art, shop.emmabodyart.is.
Um notkun vefsíðu og vefverslunar Emma Body Art gilda þessir skilmálar. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Emma Body Art samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
Emma Body Art er staðsett á Laugavegi 52. Símanúmer er +354 454 0041
Emma Body Art áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Verð:
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.
Emma Body Art áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
Vörur til einkanota:
Vörurnar í vefverslun Emma Body Art eru eingöngu til persónulegra nota.
Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Emma Body Art án tilskilinna leyfa. Emma Body Art áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Nákvæmni upplýsinga:
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun.
Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
Greiðsluleiðir:
Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. Emma Body Art er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.
Lög og varnarþing:
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.