Ear glow up
Langar þig að breyta til og láta okkur stíla eyrun þín?
Í "Ear glow up" tímanum þínum, sem hægt er að bóka á Noona, hjálpum við þér að velja nýtt útlit á eyrað þitt. Ef þig hefur alltaf dreymt um að vera með fleiri göt, finna þinn stíl, og vera með lokka sem passa vel saman, en finnst erfitt að vita hvar á að byrja, þá er tilvalið fyrir þig að fara í "Ear glow up".
Ath. að við munum alltaf aðstoða með val á lokkum sama hvernig götunartíma þú pantar. "Ear glow up" tímarnir eru fyrir þá sem vilja skipta út mörgum/öllum lokkum, eða fá nokkur ný göt í einu, og almennt nýtt "look" á eyrað. Ef þetta á ekki við um þig skaltu panta venjulegan götunartíma á Nonna.
Hvernig fer tíminn fram?
Við byrjum á því að komast að þinni sýn. Langar þig í mörg göt, eða langar þig í nýja lokka í þau göt sem þú ert með, eða bæði? Starfsfólkið okkar mun skoða eyrað þitt til þess að sjá hvaða göt og hvers konar lokkar myndu líta vel út á þér. Við mælum ekki með að fá fleiri en þrjú til fjögur göt í sama eyra á sama tíma, því það lengir heilunartímann. Við getum hins vegar skipulagt fram í tímann og þú getur komið aftur og fengið fleiri göt seinna.
Langar þig í gull- eða silfurlitaða lokka? Við erum með stórt úrval af lokkum í gulli, hvítagulli og títaníum. Ef þú ert ekki með neitt ákveðið í huga þá mun starfsfólkið skoða hvað hentar þínum húðlit og undirtónum best.
Ertu með ákveðna sýn í huga?
Við mælum með að skoða myndir áður en þú kemur í tímann og reyna að fá hugmynd um hvað þú vilt. Þú getur skoðað myndir á Instagram síðunni okkar, Pinterest, Google, og geymt þær sem þér finnst flottar. Sýndu starfsfólki í tímanum þínum til þess að gefa okkur hugmynd um þinn smekk.
Veistu kannski ekkert hvað þú vilt? Það er ekkert mál. Í tímanum þínum förum við yfir alla lokkana sem við erum með í boði og hjálpum þér að velja lokka sem fara þínu eyra.
Langar þig í hvíta steina, eða litaða steina? Við munum hjálpa þér með litasamsetningar og hvaða steinar passa vel saman.
Hvað kostar "Ear glow up"?
Verðið fer rosalega mikið eftir því hversu marga og hvernig lokka þú velur. Ertu með ákveðna peningaupphæð í huga sem þú vilt ekki fara yfir? Það er ekkert mál fyrir okkar að hafa það í huga og vinna í kringum það. Við munum mæla með lokkum sem henta þinni peningabuddu.
Hafa ber í huga að ódýrustu lokkarnir okkar eru á 2.000 kr, en verðin á 14K gulllokkum getur verið í tugum þúsunda. Við mælum með að skoða úrvalið af lokkum á vefsíðunni okkar til að fá hugmyndir um verð. Verð á "Ear glow up" hjá öðrum viðskiptavinum okkar er oft frá 50.000 kr upp í 150.000 kr.